Fréttir
  • Lucas-alexander-sJuDgtkUyYs-unsplash

Leikskólakennara vantar

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu skilyrði
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Stundvísi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað í tölvupósti gudbjorg@bolungarvik.is.

Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2022.

Allar frekari upplýsingar veitir Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, í síma 456-7264 eða á netfangið gudbjorg@bolungarvik.is.

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 nemendur. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu.

Heimasíða leikskólans er gladheimar.leikskolinn.is.

Bolungarvík

Bolungarvík skartar einstakri náttúrufegurð sem býður upp á fjölbreytta útivist allt árið.

Bærinn er sannkölluð perla fyrir fjölskyldufólk þar sem finna má auðugt og heilbrigt mannlíf, góða leik-, grunn- og tónlistarskóla, sundlaug, þreksal, íþróttahús og frábærar göngu-, hjóla- og skíðaleiðir.

Í Bolungarvík er boðið upp á fjölbreytta þjónustu í göngufæri og öflugt menningarlíf með Félagsheimili Bolungarvíkur í öndvegi.

Bolungarvík er kraftmikið samfélag í einstakri umgjörð stórfenglegrar náttúru Vestfjarða þar sem tækifæri til vaxtar eru hvarvetna fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Bolungarvík er stórfenglegur staður.