Fréttir
  • Mistök urðu við álagningu fasteignagjalda Bolungarvíkurkaupstaðar í upphafi árs er snýr að sorpeyðingargjaldi.

Leikskólakennarar

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 börn. 

Í leikskólanum er unnið með lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Innleiðing á verkefninu Heilsueflandi leikskóli er í fullum gangi. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leikskólakennaramenntun, áskilin
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Stundvísi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsækjandi þarf að geta hafið störf í ágúst. 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólans Hlíðarstræti 16 eða í tölvupósti gladh@bolungarvik.is Umsóknafrestur er til 15. júní 2019.

Allar frekari upplýsingar veitir Ragnheiður í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.

Heimasíða leikskólans er http://gladheimar.leikskolinn.is.