Fréttir
  • Skjaldarmerki Bolungarvíkur

Leikskólakennari óskast

Laus er til umsóknar 100% staða leikskólakennara við leikskólann Glaðheima á deild fyrir 2-4 ára börn. 

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 börn. 

Í leikskólanum er unnið með lífsleikni í leikskóla sem byggist á dygðakennslu. Mikil áhersla er einnig lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu og er verið að innleiða Heilsueflandi leikskóli. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ. 

Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun er áskilin
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Stundvísi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsækjandi þarf að geta hafið störf 15. ágúst 2017. 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólans Hlíðarstræti 16 eða í tölvupósti gladh@bolungarvik.is  

Umsóknafrestur er til 7. júlí 2017.

Allar frekari upplýsingar veitir  Ragnheiður í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.

Heimasíða leikskólans er http://gladheimar.leikskolinn.is.