Fréttir
  • Bryndis_Gudmundsdottir

Leikskólinn fær gjöf

Bryndís hefur starfað í rúmlega 30 ár sem talmeinafræðingur og hefur m.a. gefið út námsefni undir heitinu, Lærum og leikum með hljóðin, sem ætlað er öllum barnafjölskyldum og skólum. Námsefnið byggir á fagþekkingu talmeinafræðinnar, rannsóknum og reynslu Bryndísar af því að vinna með börnum, foreldrum og fagfólki skóla. Efnið hefur hlotið ýmsar viðurkenningar.

Það er mikilvægt að leggja grunn að læsi frá unga aldri með áherslu á þá þætti sem rannsóknir sýna að skipta meginmáli fyrir framtíðarnám barna, Lærum og leikum með hljóðin kennir framburð hljóða, hljóðavitund og bókstafi, þjálfar hljóðkerfisþætti, eykur orðaforða og hugtakaskilning, auk þess að gefa fyrirmynd að setningagerð og mörgum málfræðiþáttum íslenskunnar, segir Bryndís.

Allir leikskólar á landinu, fá nú í sumar, heildstætt efni úr Lærum og leikum með hljóðin að gjöf til að nýta í starfi sínu með leikskólabörnum. Aukaefni eins og púsl, límmiðar og vinnusvuntur, sem styðja við hljóðanámið með fallegum stafamyndum, fylgir með í skólapökkunum. Einnig munu fimm íslensk smáforrit fyrir iPad vera gefin samhliða til skólanna og foreldra íslenskra barna. Bryndís mun svo fylgja efninu eftir með vefnámskeiðum.

Samstarfsaðilar Bryndísar sem gera þessa gjöf mögulega eru Marel, Lýsi, Ikea og hjónin Björgólfur Thor og Kristín Ólafsdóttir, auk aðkomu Raddlistar sem er fyrirtæki Bryndísar í talmeinaþjónustu.

Stjórnendur og starfsfólk sveitarfélagsins þakka Bryndísi kærlega fyrir höfðinglega gjöf!