Fréttir
  • Leikskoli

Leikskólinn Glaðheimar Bolungarvík

Auglýsir eftir leikskólakennurum/starfsmönnum í leikskóla

Við leitum eftir leikskólakennurum eða starfsfólki með aðra menntun sem nýtist í starfi. Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Í leikskólanum er unnið faglegt starf sem byggir á grunnþáttum menntunar og dyggðarkennslu. 

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í lifandi starfsumhverfi. 

Menntunar- og hæfnikröfur

● Leyfisbréf til kennslu eða menntun sem nýtist í starfi 
● Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
● Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg 
● Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum 
● Hæfileiki til að vera þátttakandi í lærdómssamfélagi í þróun 
● Góð færni í íslensku máli er skilyrði 
● Frumkvæði, reglusemi og samviskusemi 
● Ábyrgð og stundvísi 

Fríðindi í starfi 
● Stytting vinnuviku 
● Frítt fæði - hádegismatur og kaffitími 
● Forgangur barna í leikskóla 
● Afsláttur af dvalargjaldi barna 

Ráðið er í stöðuna eftir samkomulagi frá og með 15. ágúst eða 1. September.

Umsóknarfrestur til og með 15.08.2023.

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Laun og launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ og/eða hlutaðeigandi stéttarfélag. 

Umsókn skal senda á netfangið salomeh@bolungarvik.is . Öllum umsóknum verður svarað. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Upplýsingar um starfið veitir Salóme Halldórsdóttir leikskólastjóri í síma 456-7264 eða í gegnum netfangið salomeh@bolungarvik.is  

Heimasíða leikskólans er https://gladheimar.leikskolinn.is/