Fréttir
  • Leikskólinn Glaðheimar

Leikskólinn Glaðheimar Bolungarvík auglýsir eftir leikskólakennurum

Við leitum að leikskólakennurum eða starfsfólki með aðra menntun eða reynslu sem nýtist í starfi.

Lausar eru til umsóknar stöður við leikskólann Glaðheima í Bolungarvík. Við leitum að
leikskólakennurum eða starfsfólki með aðra menntun eða reynslu sem nýtist í starfi. Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 55 nemendur. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og lífsleikni í leikskóla sem byggist á dyggðakennslu. Mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum KÍ.


Menntunar- og hæfnikröfur:
● Leyfisbréf til kennslu
● Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
● Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
● Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
● Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
● Stundvísi
● Hreint sakavottorð
● Góð íslenskukunnátta


Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.

Umsókn skal senda á netfangið gladh@bolungarvik.is. Umsóknarfrestur er til og með
29.nóvember.

Upplýsingar um starfið veitir Salóme Halldórsdóttir leikskólastjóri í síma 847-3391 eða í gegnum netfangið gladh@bolungarvik.is


Heimasíða leikskólans er https://gladheimar.leikskolinn.is/