Fréttir
  • Bolungarvík

Leikskólinn Glaðheimar í Bolungarvík auglýsir eftir starfsfólki

 

Í stækkandi samfélagi eins og Bolungarvík þá fjölgar börnum í leikskólanum og leitum við því eftir leikskólakennara / starfsmanni sem getur unnið 80 - 100% starf inn á deildum. Einnig auglýsum við eftir stuðningsfulltrúa sem starfar inná deild sem stuðningur. 

 

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli. Í leikskólanum er unnið með heilsueflingu og mikil áhersla er lögð á útiveru, hreyfingu og hollustu. Í leikskólanum er unnið faglegt starf sem byggir á grunnþáttum menntunar og dyggðarkennslu.

Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf í lifandi starfsumhverfi, viltu vera með?

Ég og þú og allir saman, treystum, virðum – þá er gaman ! 

 

Menntunar- og hæfnikröfur:
● Leyfisbréf til kennslu eða menntun sem nýtist í starfi
● Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
● Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
● Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
● Færni í íslensku máli er skilyrði
● Frumkvæði, samviskusemi og jákvæðni
● Ábyrgð og stundvísi

 Fríðindi í starfi:
● Stytting vinnuviku
● Frítt fæði - hádegismatur og kaffitími
● Forgangur barna í leikskóla
● Afsláttur af dvalargjaldi barna

Fyrir stuðningsfulltrúa :

Menntunar og hæfnikröfur:
•Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
•Færni í íslensku máli er skilyrði
•Reynsla af uppeldis og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
•Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
•Jákvæðni, frumkvæði og samviskusemi
•Ábyrgð og stundvísi


Fríðindi í starfi

  • Stytting vinnuviku
  • Frítt fæði - hádegismatur og kaffitími
  • Forgangur barna í leikskóla
  • Afsláttur af dvalargjaldi barna 

Ráðið er í stöðurnar eftir samkomulagi 
Umsóknarfrestur til 10. janúar 2024
 

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil. Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila. Laun og launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ og/eða hlutaðeigandi stéttarfélag. 

 

Umsókn skal senda á netfangið salomeh@bolungarvik.is Öllum umsóknum verður svarað. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. 

Upplýsingar um störfin veitir Salóme Halldórsdóttir leikskólastjóri í síma 456-7264 eða í gegnum netfangið salomeh@bolungarvik.is  

Heimasíða leikskólans er http://gladheimar.leikskolinn.is