Fréttir
  • Skidi

Leikskólinn okkar fékk frábæra gjöf í dag

Einstaklingar og fyrirtæki í bænum styrktu framtakið.

Nokkrir foreldrar tóku sig til og söfnuðu fyrir gönguskíðum. Einstaklingar og fyrirtæki í bænum styrktu framtakið og tók elsti árgangur leikskólans við gönguskíðunum í dag fyrir hönd hans. Gefin voru 12 gönguskíði og 12 skópör, einnig voru gefin tvenn kennrara skíði og skór.

Við á leikskólanum þökkum kærlega fyrir þetta framtak foreldra og hlökkum til þess að byrja að æfa okkur og til skemmtilegra stunda á gönguskíðum.

Image