Fréttir
  • 20220705_Umhverfing

Myndlistarsýningin Nr. 4 Umhverfing, Vestfirðir, Strandir og Dalir

Myndlistarsýningin er ferðalag um Dali, Vestfirði og Strandir og tengist hinni nýju Vestfjarðarleið sem varð til við opnun Dýrafjarðarganga. Með sýningunni gefst ferðamönnum tækifæri á að ferðast í gegnum fjórðunginn með nýstárlegum og óvæntum hætti. Alls taka 126 myndlistarmenn þátt í sýningunni.

Myndlistarmennirnir tengja sig ákveðnum stöðum, en á margvíslegum forsendum. Þeir ýmist eiga þar beinar rætur, forfeður þeirra og mæður eiga þar einhverja sögu, jafnvel langt aftur í aldir, eða þá að þeir sjálfir hafa sótt þangað innblástur. Í þannig ferli verða til ólík listaverk með vísun til einstakrar sögu eða staðhátta eða sem sprottin eru úr ímyndunaraflinu sjálfu.

Mörg þeirra verka eru algerlega staðbundin og gætu aldrei verið annarsstaðar. Þátttakendur hafa mjög mismunandi bakgrunn í mynd listinni og má segja að í þessum mikla fjölda megi finna fulltrúa margra helstu strauma og stefna í myndlist samtímans. Hér er hún aðgengileg fyrir alla á hringferð um menningar landslag Vestfjarða, Dala og Stranda.

Í Bolungarvík er sýning í Einarshúsi er opin alla daga frá kl. 11:45-20:30, sýning í Ósvör er útisýning og því alltaf aðgengileg og sýning í Ráðhúsinu er opin alla virka daga á opnunartíma Þjónustumiðstöðvarinnar frá kl. 10-15.

Akademía skynjunarinnar www.academyofthesenses.is stendur fyrir verkefninu Umhverfing.

Myndlistarsýningin Nr. 4 Umhverfing er fjórða sýningin í sýningarröð verkefnisins. Akademía skynjunarinnar gefur út veglega bók um sýninguna, myndlistarmennina og verk þeirra.

Qr4QR-kóði sýningarinnar opnar inn á leiðarkort á Google Maps um sýninguna. Myndlistarsýningin Nr. 4 Umhverfing er styrkt af Uppbyggingasjóðum landshluta, Vesturlands og Vestfjarða, Myndlistarsjóði og Listasjóði Dungal. Heimamenn hafa tekið verkefninu fagnandi og stutt það með margvíslegum hætti og er það von aðstandenda allra að það leiði af sér frjóa umræðu og gefi njótendum nýja sýn á samband lífs og lista.

Instagram: @academyofthesenses
#umhverfing
#Vestfjarðarleiðin
#Westfjordsway
#Westfjords