Fréttir
  • Mariann Rähni

Mariann í netsöngkeppni Samfés

Samfestingurinn 2020 var felldur niður vegna faraldursins en Söngkeppi Samfés hefur verið hluti af honum þar sem mörg þúsund unglingar hafa komið saman í Laugardalshöllinni eina helgi, keppt í ýmsum greinum og skemmt sér saman.

Ákveðið var að halda netsöngkeppni í staðinn fyrir Söngkeppni Samfés en Mariann Rähni sigraði forkeppnina hér á norðanverðum Vestfjörðum í febrúar. 

Unglingar af öllu landinu höfðu þegar tekið þátt í forkeppnum, landshlutakeppnum og var búið að velja 30 atriði sem keppa áttu í úrslitum Söngkeppni Samfés 2020. Það má því með sanni segja að efnilegustu söngvarar og söngkonur landsins komi fram á þessum frábæra viðburði sem fyrst var haldinn 1992 í Danshúsinu í Glæsibæ.

Dómnefnd velur sigurvegara keppninnar sem og annað og þriðja sæti. 

Einnig er netkosning um titilinn Rödd fólksins 2020.

Úrslit Söngkeppni Samfés 2020 og Rödd fólksins verða tilkynnt á ungruv.is mánudaginn 25. maí klukkan 20:00.

  • Mariann Rähni syngur lagið Hjá þér með af Sálinni Hans Jóns míns.