Fréttir
  • Neydarkallinn2017

Neyðarkall Ernis

Neyðarkallin í ár er vélsleðakall. 

Neyðarkall björgunarsveitanna er fjáröflun björgunarsveita landsins. Felst hún í sölu á lyklakippu með áföstum björgunarsveitarmanni. Hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita, slysavarnadeilda og Slysavarnafélagsins Landsbjargar og er hann notaður til að efla og styrkja starfið.

Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.