Neyðarkall úr fortíð
Þessa dagana senda björgunarsveitirnar frá sér Neyðarkall sem nú kemur úr
fortíðinni enda fagnar Slysavarnafélagið Landsbjörg 90 ára afmæli á þessu ári.
Með því að kaupa Neyðarkall tekur þú þátt í uppbyggingarstarfi björgunarsveitanna í landinu og stuðlar um leið að eigin öryggi og annarra.
Taktu vel á móti sjálfboðaliðum björgunarsveitanna og leggðu okkur lið.
Þetta er Neyðarkall til þín.