Opið bókhald
Íbúar og aðrir vefnotendur geta nú inn á svæði sem birtir fjárhagsupplýsingar sveitafélagsins.
Þar gefst kostur á að fylgjast með hreyfingum fjármagns sem um sveitarfélagið fara. Veflausnin býður upp á myndræna framsetningu í súluritum, kökum og hlutfallsmyndum.
Veflausnin er unnin í samvinnu við Wise-lausnir sem halda utan um bókhaldskerfi sveitarfélagsins.
Veflausnin er hluti af Navision og notast við vöruhús gagna og Microsoft Power BI. Lausnin sækir gögn í bókhald sveitarfélagsins sem uppfærast jafn óðum. Hægt að sækja gögn aftur til ársins 2016.
Þegar komið er inn á síðuna er hægt að velja fjóra yfirflokka.
- Hvert fara peningarnir - allir flokkar.
- Hvaðan koma peningarnir og þar er hægt að sjá skiptinguna á skatttekjum.
- Hvert fara peningarnir - greining en þar er hægt að fara inn á hverja deild til að skoða bæði tekjur, vörukaup og þjónustukaup og hverjir eru helstu lánadrottnar.
- Hvert fara peningarnir – lánadrottnar en þar má sjá alla lánadrottna eftir stærð.
Hægt er að takmarka val við nokkra þætti í stað allra með því að nota „ctrl“-takka lyklaborðsins til að velja viðkomandi þætti. Til að hreinsa er ýtt á strokleðrið fyrir ofan valgluggana.
Með þessari lausn leggur sveitarfélagið sitt að mörkum til að upplýsa skattgreiðendur og notendur þjónustu í sveitarfélaginu um það hvert peningarnar okkar fara.