Fréttir

Opinn fundur Innviðafélagsins með oddvitum framboðanna

Opinn fundur með oddvitum frambjóðendanna í Norðvestur kjördæmi 11. nóvember í Alþýðuhúsinu kl 17:00.

Fundarefnið er samgöngur á Vestfjörðum, samgöngubætur, samgönguáætlun, og þær hugmyndir sem fram hafa komið hjá Innviðafélagi Vestfjarða um sérstakan samgöngusáttmála - Vestfjarðalínu.

Gísli Freyr Valdórsson, stjórnandi hlaðvarpsins Þjóðmála, og Stefán Einar Stefánsson, ritstjóri Spursmála Morgunblaðsins, stýra umræðum.

Þá mun fundurinn vera í beinni útsendingu á risa skjá á Skútanum á Patreksfirði.

Opið öllum, ókeypis inn.

Sjá viðburð á Facebook hér.