Ræsting leikskóla
Um framtíðarstarf er að ræða þar sem unnið er frá 16:00-19:30 alla virka daga. Möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma. Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan apríl.
Umsækjendur verða að uppfylla kröfur um:
- Hreint sakavottorð.
- Hafa náð 18 ára aldri.
- Kunnátta í íslensku og/eða ensku er mikilvæg.
- Reynsla af ræstingum í fyrirtækjum er mikill kostur.
Aðrir þættir sem litið er til við ráðningu:
- Góð líkamleg heilsa
- Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
- Færni i mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð vinnubrögð
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður I. Ragnarsdóttir eða Guðbjörg S. Hafþórsdóttir í síma 456-7264 eða gladh@bolungarvik.is.
Æskilegt er að ferilskrá fylgi umsókn. Vel útfylltar umsóknir auka líkur á ráðningu.
Umsóknir sendist á gladh@bolungarvik.is.
Umsóknafrestur er til 31. janúar 2022.
Leikskólinn Glaðheimar er bæði í nýju húsnæði og nýuppgerðu, skólinn er um 600 m². Um 50 nemendur eru við skólann og 20 starfsmenn. Skólinn er opinn til kl. 16:30 en ekkert mál er að byrja að ræsta kl. 16:00.