Fréttir
  • Sjóminjasafnið Ósvör

Safnvörður í Ósvör

Hefur þú gaman af að ræða við og fræða ferðamenn og starfa við ferðaþjónustu? Í starfinu felst að taka á móti ferðamönnum á opnunartíma safnsins, veita leiðsögn og sinna ýmsum tilfallandi verkefnum

Hæfniskröfur eru samskiptahæfileikar, íslensku- og enskukunnátta, frumkvæðni, jákvæðni, sjálfstæði í vinnubrögðum og reynsla af þjónustustörfum er æskileg.

Opnunartími safnsins er frá kl. 10-16 alla daga. Annar opnunartími safnsins er eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir Katrín Pálsdóttir, fjármála- og skrifstofustjóri, í síma 8670390 og netfangi katrin@bolungarvik.is.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2021.

Umsóknir sendist á katrin@bolungarvik.is.