Sólveig vann nafnasamkeppnina
Sólveig fékk afhent tvö gjafabréf á bæjarskrifstofunni í dag fyrir hugmyndina að nöfnum grísanna Gná og Glóð.
Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri, afhenti henni gjafabréfin og þakkaði henni fyrir þátttökuna í nafnasamkeppninni.
Alls bárust 116 tillögur að nöfnum í keppninni eða 432 nöfn.