Starf í Árbæ
Árbæ íþróttamiðstöð vantar starfskraft.
Um er að ræða 50% starf við baðvörðslu kvenna.
Starfið felur í sér öryggisgæslu, afgreiðslu og tilfallandi viðhalds og ræstistörf.
Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og geta staðist sundpróf laugarvarða samkvæmt reglum þar um. Fræðsla í skyndihjálp og öryggisreglum íþróttamiðstöðvarinnar fer fram við upphaf starfs.
Æskilegir eiginleikar
- Rík ábyrgðartilfinning og áreiðanleiki
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Snyrtimennska og dugnaður til að fylgja henni eftir
- Skipulagshæfileikar og festa
- Glaðværð og vinnusemi
Ráðið verður í starfið frá 1. september 2017.
Umsóknarfrestur er til 31. júlí 2017.
Nánari upplýsingar veitir forstöðum í síma 456 7381 og 696 7316.
Íþróttamiðstöðin Árbær / Musteri vatns og vellíðunar, er lifandi og skemmtilegur vinnustaður.
Þangað sækja fjölmargir gestir, á öllum aldri, sér til ánægju og heilsubótar.
Íþróttamiðstöðin er heilsulind bæjarins og starfsemi hennar mikilvægur þáttur í markmiðum Heilsubæjarins Bolungarvík.