Fréttir
  • Íþróttamiðstöðin Árbær

Starfskrafta vantar í Musterið

Um er að ræða 68% starf við baðvörslu karla og 50% starf við baðvörslu kvenna.

Starfið felur í sér öryggisgæslu, afgreiðslu og tilfallandi viðhalds- og ræstistörf.

Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og geta staðist sundpróf laugarvarða samkvæmt reglum þar um.

Fræðsla í skyndihjálp og öryggisreglum Íþróttamiðstöðvarinnar Árbæjar fer fram við upphaf starfs.

Æskilegir eiginleikar

 

  • Rík ábyrgðarkennd og áreiðanleiki
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Snyrtimennska og dugnaður til að fylgja henni eftir
  • Skipulagshæfileikar og festa

 

Umsóknarfrestur er til 12. september 2018.

Nánari upplýsingar veitir Gunnar Hallsson, forstöðumaður, í síma 696 7316 og gunnar@bolungarvik.is. 

Íþróttamiðstöðin Árbær er lifandi og skemmtilegur vinnustaður. Miðstöðina sækja fjölmargir gestir á öllum aldri  sér til ánægju og heilsubótar. Íþróttamiðstöðin er heilsulind bæjarins og starfsemi hennar mikilvægur þáttur í markmiðum heilsubæjarins Bolungarvík.