Fréttir
  • Íþróttahúsið Árbær

Starfskraftar óskast

Starfið felur í sér öryggisgæslu, afgreiðslu og tilfallandi viðhalds og ræstistörf.

Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og geta staðist sundpróf laugarvarða samkvæmt reglum þar um. Fræðsla í skyndihjálp og öryggisreglum íþróttamiðstöðvarinnar fer fram við upphaf starfs.

Æskilegir eiginleikar

 

  • Rík þjónustulund
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Snyrtimennska og dugnaður til að fylgja henni eftir
  • Tungumálakunnátta æskileg 

 

Umsóknarfrestur er til 15. maí n.k.

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 456 7381 og 696 7316  Íþróttamiðstöðin Árbær er lifandi og skemmtilegur vinnustaður. Þangað sækja fjölmargir gestir, á öllum aldri,  sér til ánægju og heilsubótar. 

Íþróttamiðstöðin er heilsulind bæjarins og starfsemi hennar mikilvægur þáttur í markmiðum Heilsubæjarins Bolungarvík.