Fréttir
  • Bolungarvík

Starfsmaður félagslegrar þjónustu óskast

Um er að ræða 75-100% stöðugildi, eftir samkomulagi. 

Starfsmenn í félagslegri heimaþjónustu aðstoða á heimilum við almennt heimilishald, s.s. þrif og þvotta og veita þjónustuþegum félagslegan stuðning. 

Óskað er eftir starfsmanni sem er fær í mannlegum samskiptum og er samviskusamur. Reynsla í starfi með fólki er æskileg. 

Nánari upplýsingar veitir Guðný Hildur Magnúsdóttir, félagsmálastjóri, sími 450-7000 og í gegnum netfangið gudnyhildur@bolungarvik.is.

Umsóknir skulu berast á bæjarskrifstofuna eða á netfangið gudnyhildur@bolungarvik.is.