Fréttir
  • Bolungarvík, mynd Haukur Sigurðsson

Starfsmaður í eldhús

Glaðheimar er þriggja deilda leikskóli með um 50 börn. 

Um er að ræða 50% stöðu frá kl. 10:00-14:00 alla virka daga. Helstu verkefni eru að taka á móti hádegismat frá mötuneyti grunnskólans, sjá um innkaup á mat- og hreinlætisvörum, bakstur og uppvask. Innleiðing á verkefninu Heilsueflandi leikskóli er í fullum gangi og því er lögð áhersla á hollustu. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum VSB. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Reynsla af matseld æskileg
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Áhugi á næringu barna og velferð þeirra
  • Stundvísi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

Umsækjandi þarf að geta hafið störf í ágúst. 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu leikskólans Hlíðarstræti 16 eða í tölvupósti gladh@bolungarvik.is.

Umsóknafrestur er til 15. júní 2019.

Allar frekari upplýsingar veitir Ragnheiður í síma 456-7264 eða á netfangið gladh@bolungarvik.is.

Heimasíða leikskólans er http://gladheimar.leikskolinn.is.