Starfsmaður óskast í umönnun
- Um er að ræða 40% starfshlutfall í vaktavinnu, auk meiri vinnu í afleysingum.
- Reynsla af umönnunarstörfum er æskileg.
- Menntun sem nýtist í starfinu er kostur.
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára og eldri.
- Óskað er eftir einstaklingi sem er ábyrgur og góður í mannlegum samskiptum.
- Æskilegt er að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Á Bóli vinnur öflugur starfsmannahópur á sólahringsvöktum. Nýir starfsmenn fá góða þjálfun og bakvakt er til staðar. Vinnuaðstaða á Bóli er eins og best er á kosið.
Umsóknir eða fyrirspurnir sendist til:
Guðnýjar Hildar Magnúsdóttur, gudnyhildur@bolungarvik.is
eða Trausta Salvars Kristjánssonar traustisalvar@gmail.com.