Fréttir
  • Bolungarvík. Mynd: Haukur Sigurðsson.

Sumarstarf Bolungarvíkurkaupstaðar

Áhaldahús Tjarnarkambi 1- Fullt starf- ein staða
Umsóknarfrestur: 30.03.2023
Ráðningartímabil 17.05.2023-31.08.2023

Tæknideild Bolungarvíkurkaupstaðar auglýsir eftir starfsmanni í flokkstjórn vinnuskóla og við hin ýmsu störf hjá áhaldahúsi.

Helstu verkefni: Afleysing núverandi starfsmanna, vinnuskóli, ýmis tilfallandi verkefni á vegum áhaldahúss ss. vatnsveitumál, fráveitumál, almenn umhirða bæjarlandssins, hellulögn, sláttur, tiltekt, aðstoð og afleysingar við ferðamannastaði eins og Ósvör og Bolafjall, aðstoð við viðburði og þess háttar.

Hæfniskröfur:
Starfsmenn þurfa að vera 25 ára og eldri.
Reynsla af verkstjórn og verkframkvæmdum er nauðsynleg.
Bílpróf skilyrði.
Vinnuvélapróf kostur.
Iðnmenntun kostur.
Krafist er stundvísi og jákvæðni.

Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt samningi Bolungarvíkurkaupstaðar og viðkomandi stéttafélags.
Starfshlutfall 100%
Nánari upplýsingar um starfið gefur Finnbogi Bjarnason sími 450-7000 eða í netfangi
finnbogi@bolungarvik.is

Umsóknum skal skilað inn til Finnboga Bjarnasonar á netfangið finnbogi@bolungarvik.is