Sumarstörf
Helstu verkefni eru afleysing núverandi starfsmanna, vinnuskóli, ýmis tilfallandi verkefni á vegum áhaldahúss, ss. vatnsveitumál, fráveitumál, almenn umhirða bæjarlandssins, hellulögn, sláttur, tiltekt, aðstoð við viðburði og þess háttar.
Hæfniskröfur:
- Starfsmenn þurfa að vera 20 ára og eldri.
- Reynsla af verkstjórn og verkframkvæmdum er nauðsynleg.
- Bílpróf skilyrði.
- Vinnuvélapróf kostur.
- Iðnmenntun kostur.
- Krafist er stundvísi og jákvæðni.
Laun eru samkvæmt samningi Bolungarvíkurkaupstaðar og viðkomandi stéttafélags.
Starfshlutfall er 100%.
Nánari upplýsingar um störfin gefur Finnbogi Bjarnason sími 450-7008 eða í netfangi
finnbogi@bolungarvik.is.
Umsóknum skal skilað inn til Finnboga Bjarnasonar á netfangið finnbogi@bolungarvik.is.
Umsóknarfrestur er 1. maí 2021. Ráðningartímabil er 15. maí 2021-1. september 2021.