Sumarstörf í áhaldahúsi
Helstu verkefni eru afleysing núverandi starfsmanna, vinnuskóli, ýmis tilfallandi verkefni á vegum áhaldahúss s.s. vatnsveitumál, fráveitumál, almenn umhirða bæjarlandssins, hellulögn, sláttur, tiltekt, aðstoð við viðburði og þess háttar.
Ráðningartímabil er 16. maí 2022 til 31. ágúst 2022.
Hæfniskröfur:
- Starfsmenn þurfa að vera 20 ára og eldri.
- Reynsla af verkstjórn og verkframkvæmdum er nauðsynleg.
- Bílpróf skilyrði.
- Vinnuvélapróf kostur.
- Iðnmenntun kostur.
- Krafist er stundvísi og jákvæðni.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun er samkvæmt samningi Bolungarvíkurkaupstaðar og viðkomandi stéttafélags.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2022.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Finnbogi Bjarnason sími 450-7008 eða í netfangi finnbogi@bolungarvik.is.
Umsóknum skal skilað inn til Finnboga Bjarnasonar á netfangið finnbogi@bolungarvik.is.