Fréttir
  • Keppendur og dómarar í Samvest 2018

Svava Rún sigraði Samvest 2018

IMG_6138Sjö atriði með tíu þátttakendum frá Tópaz og Djúpinu kepptu.

  1. sæti: Svava Rún lék á píanó og söng lagið Beautiful lies eftir Birdy
  2. sæti: Ólöf Máney söng lagið Watch eftir Billie Eilish
  3. sæti: Karólína Mist söng lagið Rainbow eftir Kesh, Silfá lék á píanó og Guðmundur spilaði á trommur

Dómnefnd veitti einnig sérstök verðlaun fyrir leikræn tilþrif og þau féllu í hlut Einars Geirs sem söng lagið Telly eftir Tim Minchin. 

Dómnefnd skipuðu Guðmundur Hjaltason, Hjörtur Traustason og Sigrún Pálmadóttir.

Vestfirsku fjalladísirnar í Between the Mountains, sem sigruðu í fyrra, og sigruðu einnig í Músíktilraunum, komu fram.

Keppnin fór fram fyrir fullu húsi og að henni lokinni var félagsmiðstöðvaball.