Fréttir
  • Grunnskóli Bolungarvíkur

Þroskaþjálfi og umsjón heildagskóla/heilsuskóla

Í Grunnskóla Bolungarvíkur eru um 130 nemendur og 30 starfsmenn. Starfshættir grunnskólans eru í sífelldri þróun. Skólinn byggir starfsemi sína á faglegu og framsæknu skólastarfi sem tekur ávallt mið af þroska og hæfni nemenda. Í skólanum er fjölmenningarlegt samfélag nemenda, starfsfólks og foreldra.

Við skólann eru lausar eftirtaldar stöður :

80-100% staða þroskaþjálfa 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þrosaþjálfi
  • Áhugi á starfi með börnum og unglingum
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð færni í íslensku máli jafnt í ræðu og riti
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hreint sakarvottorð

Launakjör: eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands. 

60% staða umsjónarmanns heildagsskóla/ heilsuskóla

Lýsing á starfinu: Umsjón, skipulag og frágangur lengdrar viðveru yngstu skólabarnanna ásamt umsjón með heilsuskólanum.Vinnutíminn er 12:30-16:00. 

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Gott vald á íslenskri tungu
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæðni, leiðtogahæfni og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð

Launakjör: Laun og önnur starfsskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi séttarfélag.

Umsóknum skilað til skólastjóra á netfangið halldoras@bolungarvik.is með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu, ásamt ábendingum um meðmælendur. Móttaka umsókna verður staðfest.

Nánari upplýsingar veitir Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir skólastjóri í síma 4567249, netfang: halldoras@bolungarvik.is.

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störfin.

Ráðið verður í stöðurnar frá 15. ágúst 2020.

Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2020.