Umhverfisátak
Nú styttist óðum í sjómannadaginn í Bolungarvík og því tilvalið að taka til hendinni hér í bænum. Bolungarvíkurkaupstaður boðar til umhverfisátaks þar sem íbúar eru hvattir til að huga að nánasta umhverfi og gera bæinn snyrtilegri.
Salt til gróðureyðingar er hægt að fá ókeypis hjá Hafnarvog og við Áhaldahús.
Hreinsunardagur og grill
Íbúar eru boðaðir til sérstaks hreinsunarátaks miðvikudaginn 28. maí kl. 16-18.
Poka og plokktangir má nálgast við Musteri vatns og vellíðunar klukkan 16:00. Það verður hægt að skilja fulla poka eftir við öll götuhorn þar sem þeir verða sóttir.
Klukkan 18 verður plokkurum boðið í grill við Musteri vatns og vellíðunar.
Í tengslum við umhverfisátakið verða afklippur af trjám og runnum og annar garðaúrgangur fjarlægður garðaeigendum að kostnaðarlausu á eftirfarandi dögum:
- Mánudaginn 26. maí
- Mánudaginn 2. júní
- Þriðjudaginn 10. júní
Garðaúrgangur ætti að vera í pokum, en trjágreinar bundnar saman og staðsett þannig að vel sé aðgengilegt starfsmönnum bæjarins.
Fyrirtæki eru hvött til þess að taka til í kringum sín fyrirtæki.
Heilbrigðiseftirlitið um á næstu dögum fara af stað í að líma viðvörun á óskráð ökutæki og lausamuni. Vert er að vekja athygli á að bæjaryfirvöld hafa víðtækar heimildir til að grípa til aðgerða gagnvart þeim aðilum sem ekki sinna tilmælum. Samkvæmt ákvæðum 56. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.9.2. í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er hægt að grípa til aðgerða sem felur í sér m.a. beitingu dagsekta eða ákvörðun byggingarfulltrúa um að láta fjarlægja drasl á lóðum á kostnað eiganda.