Umsókn um starf í vinnuskóla
Vinnuskólinn er fyrir unglinga með lögheimili í Bolungarvík (eða annað foreldri með lögheimili í Bolungarvík). Boðið er uppá vinnu sem hér segir:
- Unglingar í 8. bekk grunnskóla – 4 tímar á dag í 4 vikur
- Unglingar í 9. bekk grunnskóla – 4 tímar á dag í 5 vikur
- Unglingar í 10. bekk grunnskóla – 6 tímar á dag í 5 vikur
- Unglingar í 1. bekk menntaskóla – 6 tímar á dag í 5 vikur
Unnið verður frá kl. 8 alla virka daga, unglingar í 8. og 9. bekk hætta kl. 12 en unglingar í 10. og 1. bekk hætta kl. 14.
Kaffitímar eru kl. 10 í 15 mínútur og matartími kl. 12 í 30 mínútur. Ætlast er til að unglingarnir komi með nesti í kaffi og matartíma.
Vinnuskólinn fær úthlutað verkefnum frá Bolungarvíkurkaupstaðar. Fjölbreytt verkefni eru í boði eins og vinna við:
- Áhaldahús
- Höfnina
- Sundlaug og tjaldsvæði
- Garðyrkjustörf
- Ósvör
- Leikskóla og
- Viðburði
Umsóknum um vinnuskólann þarf að skila fyrir 20. maí 2022 á bæjarskrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar.
- Umsókn (Word)