Fréttir
  • Grunnskólinn

Útboð á matseld fyrir mötuneyti grunnskóla og leikskóla í Bolungarvík


Útboðið miðast við að tvo valmöguleika:

1. Elda mat fyrir um 140 nemendur í Grunnskóla Bolungarvíkur og um 50 nemendur í Leikskólanum Glaðheimum, auk kennara og starfsmanna. Matseld fer fram í grunnskólanum í eldhúsi sem verkkaupi útvegar. Ekið skal með matinn í Glaðheima en starfsmenn Glaðheima sjá um að framreiða í leikskólanum.

2. Elda mat fyrir um 140 nemendur í Grunnskóla Bolungarvíkur, auk kennara og starfsmanna. Matseld fer fram í Grunnskólanum í eldhúsi sem verkkaupi útvegar.

Óskað er eftir tilboði í hvoru tveggja.

Útboðið er almennt opið útboð eins og lýst er í ÍST30/2012 og um það gilda lög um framkvæmd útboða nr. 65/1993 og lög um opinber innkaup nr. 120/2016.

Yfirlit yfir helstu tímasetningar o.fl.:
• Afhending útboðsgagna - frá 10. júlí 2020
•Fyrirspurnarfrestur útrunninn - 17. júlí 2020
• Svarfrestur útrunninn - 20. júlí 2020
• Opnunartími tilboða  - 21. júlí 2020 kl. 14:00
• Opnunarstaður og tími tilboða: Ráðhús Bolungarvíkurkaupstaðar, Aðalstræti
• Gildistími tilboða - til og með 20. ágúst 2020
• Upphaf verktíma Leikskóla - 18. ágúst 2020
•Upphaf verktíma Grunnskóli - 22. ágúst 2020
• Samningstími - 3 ár
• Framlenging samnings - 1-2 ár ef báðir aðilar samþykkja

Óski bjóðandi eftir frekari upplýsingum og/eða skýringum á útboðsgögnum skal hann senda skriflega fyrirspurn á tölvupóstfang jonpall@bolungarvik.is . Öllum fyrirspurnum verður svarað samhljóða til allra þeirra sem hafa fengið afhent útboðsgögn á tölvupóstföng viðkomandi.

Bjóðendur er hvattir til að senda fyrirspurnir eins fljótt og kostur er á tilboðstímanum. Fyrirspurnum verður svarað eins fljótt og auðið er. Athygli er vakin á því að ekki verður haldinn sérstakur kynningarfundur vegna útboðsins.