VARÚÐ – Neysluvatn í Bolungarvík er í ólagi
Kæru Bolvíkingar. Það var mikil úrkoma og rigning í nótt. Vatnið sem kom úr vatnsbólum í Hlíðardal er mjög drullugt og mikil óhreinindi fylgja því. Svo mikið að því miður réð hreinsikerfið í Vatnsveitunni í Hlíðardal ekki við álagið og allar síur stífluðust. Vatnið í Bolungarvík er því ekki gott í dag, drullugt og óhæft til drykkjar.
Íbúar eru því beðnir um að sjóða vatn til neyslu sem varúðaraðgerð.
Unnið er áfram að því að koma vatnsveitunni í gott horf og vonandi lagast ástandið sem fyrst. Það er ekki hægt að segja með vissu hvenær þetta mun lagast, eða það fer eftir veðri. Veðrið á að ganga niður í dag og hætta að rigna í kvöld.
Nýjar upplýsingar verða settar hér inn um leið og ástandið lagast.