Fréttir
  • Bolafjall-20220901-DJI_0504

Vegurinn upp á Bolafjall opinn frá og með 13. júní

Vegurinn upp á Bolafjall opnaður fyrir umferð. Bolafjall er 638 metra hátt fjall fyrir ofan Bolungarvík. Á Bolafjalli var ein af fjórum ratsjárstöðvum sem Ratsjárstofnun rak fyrir hönd ameríska hersins. Í dag er ratsjárstöðin á Bolafjalli rekin af Landhelgisgæslunni.

Frá fjallinu er stórbrotið útsýni að Hornstrandafriðlandinu, Jökulfjörðum, Ísafjarðardjúpi og sumir segja alla leið til Grænlands. Á Bolafjalli er hrjóstrug háslétta og þaðan er mikið víðsýni til allra átta enda er Bolafjall vinsæll viðkomustaður á Vestfjörðum. Vegurinn upp á fjallið er eingöngu opinn yfir sumarmánuðina.