Fréttir
  • Ráðhús Bolungarvíkur - Bolungarvíkurkaupstaður. Mynd: Helgi Hjálmtýsson.

Verkefnastjóri á heimili fyrir fatlað barn

Á Bóli eru tveir verkefnastjórar sem vinna saman og leysa hvorn annan af. Verkefnastjórar hafa umsjón með umönnun og hjúkrun, starfsmannahaldi, teymisvinnu og samskiptum við alla sem tengjast þjónustunni. Verkefnastjórar taka sjálfir vaktir og eru til skiptis á bakvakt.

Félagsmálastjóri er forstöðumaður heimilisins og vinna verkefnastjórar í nánu samstarfi við hann.

Óskað er eftir einstaklingi sem:

  • Hefur umfangsmikla reynslu af umönnun og/eða reynslu af stjórnun í velferðarþjónustu.
  • Hefur mjög góða færni og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Er ábyrgur, skipulagður og metnaðarfullur.
  • Kostur ef viðkomandi hefði þroskaþjálfamenntun, sjúkraliðamenntun eða aðra sambærilega menntun.

Umsóknafrestur er til 31. ágúst 2021.

Félagsmálstjóri Bolungarvíkurkaupstaðar veitir nánari upplýsingar um starfið og tekur við umsóknum:

Guðný Hildur Magnúsdóttir, félagsmálastjóri, netfang: gudnyhildur@bolungarvik.is,
sími: 450-7000.

Ból er nýlegt og sérútbúið heimili fyrir fjölfatlað barn. Vinnuaðstaða þar er eins og best verður á kosið. Á Bóli vinnur góður og kröftugur starfsmannahópur og mikil áhersla er lögð á teymisvinnu.