Fréttir
  • Eldur

Verum eldklár í Bolungarvík

Slokkvilid_BolungarvikurFélag slökkviliðsmanna í Bolungarvík og Bolungarvíkurkaupstaður efna til brunavarnarátaks í Bolungarvík nú þegar skammdegið er að skella á og ljósa-, rafmagns- og kertanotkun er hvað mest.

Skipta þarf um rafhlöður í reykskynjurum einu sinni á ári og er góður siður að gera það fyrir upphaf jólaaðventu.

Slökkviliðsmenn munu á föstudagskvöldið og á laugardaginn ganga í hús og aðstoða við hvaðeina er varðar eldvarnir heimila sé þess óskað, ásamt því að hafa til sölu á kostnaðarverði rafhlöður í reykskynjara, eldvarnarteppi og handslökkvitæki. 

Einnig munum við skipta um rafhlöður í reykskynjurum, setja upp nýja, sem og handslökkvitæki og eldvarnarteppi fyrir eldri borgara og þá sem erfitt eiga um vik.

Á laugardag verður slökkvitækjahleðsla staðsett á slökkvistöðinni og geta allir farið með slökkvitæki sín og látið yfirfara þau þar frá kl. 10. Handslökkvitæki þarf að yfirfara á tveggja ára fresti. 

Algengustu brunar á Íslandi eru af völdum rafmagns og raftækja.

Við hvetjum alla til að huga vel að kertaskreytingum sem oft hefur kviknað í út frá.

Hættulegustu eldsvoðar verða að nóttu til þegar heimilisfólk er sofandi. Eldurinn magnast ótrúlega fljótt og reykurinn verður banvænn á fáeinum mínútum. Reykskynjarar sem vara heimilisfólkið við hættunni, ættu því að vera í hverju herbergi þar sem raftæki eru staðsett, einnig í bílskúrum. 

Prófa þarf reykskynjarana reglulega og skipta þarf um rafhlöður árlega. Reykskynjurum þarf að skipta út ef minnsti vafi leikur á að þeir séu í lagi og reykskynjarar eiga ekki að vera eldri en 10 ára.

Eldvarnarteppi og handslökkvitæki eiga að vera til á öllum heimilum og allir þurfa að kunna að nota þau.

Við skorum á alla íbúa Bolungarvíkur að tryggja öryggi heimila sinna og vinnustaða, svo sem kostur er til að við öll getum notið friðar og helgi jólanna í samvistum hvort við annað, hér í okkar yndislega samfélagi.

Þá sem komast ekki með handslökkvitæki sín til skoðunar á laugardag, munum við aðstoða og biðjum þá um að hafa samband við slökkviliðsstjóra í síma 897 1482.