Fréttir
  • Covid_19

Viðbrögð við Covid-19 smiti í Bolungarvík

Aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum hefur því ákveðið, í samráði við sóttvarnalækni, almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og skólayfirvöld að fella niður kennslu á mið- og unglingastigi (5.-10. bekkur) Grunnskólans í Bolungarvík.

Ákvörðun þessi tekur gildi frá og með morgundeginum, 1. apríl 2020, og gilda þar til annað verður ákveðið.

Allir nemendur og umsjónakennarar þeirra skulu halda sig heima í úrvinnslusóttkví meðan sýni eru greind. Þeir sem eru í úrvinnslusóttkví skulu fara að sömu fyrirmælum og aðrir þeir sem eru í heimasóttkví.

Á þessu stigi er ekki talin þörf á algjöru samkomubanni í Bolungarvík. Hins vegar er tilefni til að hvetja fólk til að halda sig heima, halda samskiptafjarlægð, takmarka ferðir og fylgja að öðru leyti leiðbeiningum yfirvalda. Unnið er að smitrakningu og beðið niðurstaðna úr sýnatökum. Nokkur fjöldi einstaklinga er nú þegar í sóttkví.

Fólk sem finnur til einkenna á að halda sig heima og hafa samband við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í síma 450 4500. Tekin eru sýni alla virka daga á Ísafirði kl. 10 - 11, en fyrst þarf að fá samband við lækni.

Viðbragðsáætlun Bolungarvíkurkaupstaðar hefur verið uppfærð í ljósi þessarar ákvörðunar.