Styrkir menningar- og ferðamálaráðs
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2023
Menningar- og ferðamálaráð Bolungarvíkurkaupstaðar auglýsir hér með eftir styrkumsóknum.
Tilgangur styrkjanna er að efla menningu og ferðaþjónustu í Bolungarvík.
Við mat á umsóknum skal horft til eftirfarandi þátta:
- Hvernig verkefnið/starfsemin auðgar menningarlífið í Bolungarvíkurkaupstað og hvernig fjármunir nýtist í því samhengi.
- Einungis er styrkt til verkefna/viðburða sem fara fram í Bolungarvíkurkaupstað.
- Hversu líklegt er að verkið verði framkvæmt, hvort aðstandendur verkefnisins geti hrint því í framkvæmd og hvort verkefnið muni laða að frekara fjármagn.
- Gæða, vinnslu og framsetningar umsóknar, sýn umsækjenda og fagleg vinnubrögð.
- Úthlutanir endurspegli breidd, nýmæli og framsækni og að endurnýjun eigi sér stað í hópi styrkþega.
Umsókn skal skila til menningar- og ferðamálaráðs á þar til gerðu eyðublaði.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur.