Tilnefningar til íþróttamanns ársins 2022
Fræðslumála- og æskulýðsráð óskar eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins 2022 í Bolungarvík. Tilnefningum skal skila inn á bæjarskrifstofu fyrir kl. 15:00 föstudaginn 30. desember 2022 eða senda tölvupóst á formann fræðslumála- og æskulýðsráðs: gudlaugros@simnet.is
Hóf til heiðurs íþróttafólki og útnefning íþróttamanns ársins verður haldið í janúar 2023 í Félagsheimili Bolungarvíkur. Dagsetning auglýst nánar síðar.
Endilega hafið samband ef þið hafið frekari spurningar.
Fræðslumála og æskulýðsráð Bolungarvíkur