Fréttir
  • Íþróttahúsið Árbær

Tilnefningar til íþróttamanns ársins 2023

Tilnefningum skal skila inn fyrir kl. 15:00 föstudaginn 30. desember 2023.

Fræðslumála- og æskulýðsráð óskar eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins 2023 í Bolungarvík. Tilnefningum skal skila inn á bæjarskrifstofu fyrir kl. 15:00 föstudaginn 29. desember 2023 eða senda tölvupóst á formann fræðslumála- og æskulýðsráðs: gudlaugros@simnet.is

Hóf til heiðurs íþróttafólki og útnefning íþróttamanns ársins verður haldið í janúar 2024 í Félagsheimili Bolungarvíkur. Dagsetning auglýst nánar síðar.

Endilega hafið samband ef þið hafið frekari spurningar.

Fræðslumála og æskulýðsráð Bolungarvíkur

Hérna er reglugerð um kjör íþróttamanns Bolungarvíkur.